Konur í Sádí-Arabíu komnar í ökumannssætið Kjartan Kjartansson skrifar 24. júní 2018 07:33 Hessah al-Ajaji ók um götur Riyadh í gærkvöldi eftir að konur fengu réttindi til að aka bíl. Vísir/AP
Áratugalöngu banni við akstri kvenna í Sádí-Arabíu lauk á miðnætti að staðartíma í gærkvöldi og fagnaði fjöldi kvenna nýfengnu frelsi með því að setjast undir stýri. Tilslökunin er hluti af umbótum sem Salman konungur skipaði fyrir um í haust. „Þetta er skrýtin tilfinning, ég er svo glöð...ég er bara svo stolt að vera að þessu einmitt núna,“ sagði Majdooleen al-Ateeq, 23 ára íbúi Riyadh, sem ók um á svörtum Lexus þegar hún ræddi við fréttamenn Reuters. Bannið hefur sætt harðri gagnrýni vestrænna ríkja í gegnum tíðina og var meðal annars líkt við ógnarstjórn talibana í Afganistan. Enn eru þó fáar konur með bílpróf í Sádí-Arabíu. Þær sem eru með próf erlendis byrjuðu að öðlast réttindi heima fyrir fyrr í þessum mánuði en aðrar afla sér ökuréttinda í nýjum ríkisreknum ökuskóla. Búist er við því að um þrjár milljónir kvenna verði akandi fyrir árið 2020.
Mest lesið „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Innlent Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Innlent Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Innlent Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Innlent „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Innlent Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Erlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira