Nefndu torg í Brussel í höfuðið á frelsishetjunni Lumumba Atli Ísleifsson skrifar 30. júní 2018 21:53 Patrice Lumumba var bolað úr embætti nokkrum mánuðum eftir að hafa tekið við embætti forsætisráðherra og var svo myrtur af aðskilnaðarsinnum sem nutu stuðnings Belgíustjórnar í janúar 1961. Vísir/Getty
Borgaryfirvöld í Brussel gáfu í dag torgi í suðausturhluta belgísku höfuðborginnar nýtt nafn og er það nú nefnt í höfuðið á kongósku frelsishetjunni Patrice Lumumba sem myrtur var 1961. Lumumba var fyrsti forsætisráðherra Kongó, landsins sem nú gengur undir nafninu Lýðveldið Kongó, eftir að landið hlaut sjálfstæði frá Belgíu árið 1960. Sú staðreynd að torg skuli nefnt í höfuðið á Lumumba er af mörgum talið stórt og mikilvægt skref fyrir Belgíu að gera upp nýlendutímabil landsins. Patrice Lumumba var bolað úr embætti nokkrum mánuðum eftir að hafa tekið við embætti forsætisráðherra og var svo myrtur af aðskilnaðarsinnum sem nutu stuðnings Belgíustjórnar í janúar 1961. Árið 2002 baðst utanríkisráðherra Belgíu afsökunar á þætti belgískra stjórnvalda í morðinu á Lumumba. Við athöfn í Brussel í dag gagnrýndu ræðumenn að enn séu fjöldi stytta af Leopold II Belgíukonungi í Brussel, en Kongó var einkanýlenda Leopolds II frá árinu 1885 til 1908. Hafa sagnfræðingar mikið fjallað um hvernig hann arðrændi og kúgaði íbúa Kongó með skelfilegum hætti. Torgið sem um ræðir er að finna í hverfinu Matange í suðausturhluta Brussel þar sem Belgar af kongóskum uppruna eru fjölmennir.
Austur-Kongó Belgía Mest lesið „Í mínum huga alveg útilokað“ Innlent Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Stærðarinnar skilti sem ekkert má sýna Innlent Jarðgöng undir Miklubraut fýsilegri kostur Innlent Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Innlent Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Erlent Segja Ásgeir Helga hafa verið 20 mínútur í stæðinu Innlent Óhjákvæmilegt fyrir stjórnvöld að grípa inn í Innlent Sveitastrákur mætir með byssuna sína á Ólympíuleikana Innlent Fleiri fréttir Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Sjá meira