Innlent

Dregur úr vatnsrennsli Skaftár

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Lögregluþjónar fylgjast með stöðu mála.
Lögregluþjónar fylgjast með stöðu mála. Vísir/Jóhann
Vatnsrennsli við Sveinstind virðist hafa náð hámarki um miðnætti og klukkan eitt í nótt. Þegar mest var mældist rennslið í tæpum 1600 rúmmetrum á sekúndu en síðan þá hefur dregið úr rennslinu. Sérfræðingur á Veðurstofu Íslands greinir frá þessu.

Ferðatími frá Sveinstindi niður að Hólaskjóli er áætlaðu 3-4 klukkustundir og frá Sveinstindi niður að bænum Skaftárdal um 6 klukkustundir en flóðið á eftir að toppa þar síðar í dag.

Rennslishámark mun standa yfir í nokkrar klukkustundir en eftir það mun draga hægt úr hlaupinu en ekki er vitað með vissu hve lengi hlaupið mun standa þó líklegt megi teljast að því verði að mestu lokið innan viku.

Eindregið er varað við því að vera á ferð á þessum slóðum vegna losunar eitraðra gastegunda úr hlaupvatninu auk þess sem stór ísflykki geta brotnað úr jökulsporðinum.

Fregnir hafa borist um sterka brennisteinslykt vestan Skaftár og allt vestur fyrir jökul.


Tengdar fréttir

Rennsli mælist nokkuð stöðugt

Tilkynningar hafa borist frá Kirkjubæjarklaustri og nágrenni um brennisteinslykt en ekki er talið að gasmengun skapi hættu við þjóðveg.

Báðir katlarnir að tæma sig samtímis í fyrsta sinn

Báðir Skaftárkatlar eru nú að tæma sig og má því gera ráð fyrir að vatn í Skaftá muni hækka enn frekar á næstu klukkustundum. Þetta ku vera í fyrsta sinn sem hleypur bæði úr Vestari og Eystri-Skaftárkatli samtímis frá því að byrjað var að fylgjast með hlaupum.

Rennsli eykst hratt í Skaftá

Vatn úr Skaftárhlaupi náði fyrsta mæli við Sveinstind um klukkan 13:15 í dag, að sögn Snorra Zóphoníassonar, sérfræðings Veðurstofunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×