Innlent

Báðar tillögur samþykktar í Árborg

Andri Eysteinsson skrifar
Kosið er um breytingar á deiliskipulagi Selfoss.
Kosið er um breytingar á deiliskipulagi Selfoss. Mynd/Arborg.is
Lokatölur úr íbúakosningunum í Árborg hafa nú verið birtar og eru niðurstöðurnar nokkuð afgerandi.

Kjörsókn var tæp 55%, alls voru 6631 á kjörskrá og af þeim kusu 3640. Á kjörseðlinum voru tvær spurningar, þær voru.

Ert þú hlynnt(ur) eða and­víg(ur) til­lögu að breyt­ingu sem bæj­ar­stjórn Árborg­ar samþykkti hinn 21. fe­brú­ar 2018 á aðal­skipu­lagi Sel­foss vegna fyr­ir­hugaðrar upp­bygg­ing­ar í miðbæ Sel­foss?

Ert þú hlynnt(ur) eða and­víg(ur) til­lögu að breyt­ingu sem bæj­ar­stjórn Árborg­ar samþykkti hinn 21. fe­brú­ar 2018 á deili­skipu­lagi fyr­ir miðbæ Sel­foss?“

Atkvæðin skiptust þannig að við fyrri spurningunni voru hlynntir 2130 eða 58%, andvígir voru 1425 eða 39% og auðir seðlar og ógildir voru 85. 

Við seinni spurningunni sögðust 2034 eða 56% vera hlynntir  1434 andvígir sem jafngildir 39% og auðir og ógildir seðlar voru 172.


Tengdar fréttir

Stefnir í 50% kjörsókn

Um 40% kjörsókn var í íbúakosningum í Árborg sem haldnar voru í dag. Kosið er um breytingar á miðbæjarskipulagi Selfoss.

Umdeild íbúakosning í Árborg í dag

Íbúar Sveitarfélagsins Árborgar gengu til kosninga um breytingar á skipulagi miðbæjar Selfoss í morgun. Aðeins tveir dagar eru síðan bæjarstjórn breytti áður auglýstum fyrirvörum, í spurningum á kjörseðli. Formaður yfirkjörstjórnar segir það ekki hafa áhrif á framkvæmd kosninganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×