Innlent

Flughálka í höfuðborginni

Gissur Sigurðsson skrifar
Búast má við að hálkan verði enn þegar morgunumferðin hefst
Búast má við að hálkan verði enn þegar morgunumferðin hefst Lögreglan á Facebook.
Flughálka myndaðist á götum  höfuðborgarsvæðisins undir morgun og var þegar farið að saltbera helstu umferðargötur. Hálkan byrjaði fyrst í efri byggðum en dreifðist svo um allt svæðið. Búast má við að hálkan verði enn þegar morgunumferðin hefst þannig að ökumenn eru varaðir við. Fréttastofu er ekki kunnugt um hvort einhver slys eða óhöpp hafa orðið vegna hálkunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×