Innlent

Tvö og hálft ár fyrir innbrotið í Gullsmiðju Óla

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Svona var aðkoman í verslunni eftir innbrotið
Svona var aðkoman í verslunni eftir innbrotið Vísir/Vilhelm
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir innbrot í skartgripabúðina Gullsmiðju Óla í Hamraborg í Kópavogi í maí síðastliðnum og sautján umferðar- og fíkniefnalagabrot.

Brotist var inn í skartgripabúðina þann 30. maí síðastliðinn og þaðan stolið nokkrum verðmætum auk þess sem að útsetningarskápar og afgreiðsluborð voru brotin.

„Það var allt í rúst. Glerbrot og blóð úti um allt. Annar þeirra hefur greinilega skorið sig mjög illa,“ sagði Óli Jóhann Daníelsson, eigandi verslunarinnar í samtali við Vísi daginn eftir innbrotið. Tveir menn voru að verki en í dómi héraðsdóms segir að annar maðurinn sé óþekktur.

Ýmislegt var brotið og bramlað í innbrotinu.Vísir/Vilhelm
Maðurinn sem var ákærður vegna innbrotsins játaði hins vegar sök og var hann sakfelldur fyrir að brjótast inn í skartgripabúðina og stela skartgripum að óþekktu verðmæti. Fallið var frá ákæri fyrir að skemma skargripi og valda tjóni á versluninni og innanstokksmunum. Þá var maðurinn einnig sakfelldur fyrir að hafa stolið bíl í Reykjavík þann 4. maí síðastliðinn og aka honum aftan á aðra bifreið á rauðu ljósi á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu.

Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir að hafa, í félagi við annan mann, ógnað starfsmanni verslunnar Iceland við Arnarbakka 4-6 með hamri og skrúfjárni og stolið 52 þúsund krónum úr versluninni.

Þá var hann einnig sakfelldur fyrir alls sautján umferðar- og fíkniefnalagabrot sem framin voru á rúmlega eins árs tímabili til 19 júlí á þessu tímabili. Gerðist maðurinn ítrekað sekur um að aka bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna eftir að hafa verið sviptur ökuréttindum.

Maðurinn hefur frá árinu 2003 verið dæmdur átta sinnum til fangelsisrefsinga, aðallega fyrir akstur undir áhrifum áfengis og fíknifefna. Maðurinn var sem fyrr segir dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi auk þess se mhann var sviptur ökuréttindum ævilangt. Þá þarf maðurinn að greiða tæplega þrjár milljónur í sakarkostnað auk málsvarnarlauna verjenda síns, 1,1 milljón króna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×