Menn skora líka með skalla í körfuboltanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. nóvember 2018 13:00 Jordan Mickey fór örugglega í símann eftir leik og skoraði skallakörfuna sína. Vísir/Getty
Skallamörk eru mjög algeng í fóboltanum en það kemur líka fyrir að körfuboltamenn skori með skalla eins ótrúlega og það hljómar. Sem sönnunargagn á bak við þá fullyrðingu er karfa sem Bandaríkjamaðurinn Jordan Mickey skoraði á dögunum fyrir rússneska félagið Khimki í Euroleague. Liðið var þá á heimavelli á móti Buducnost VOLI Podgorica frá Svartfjallalandi. Euroleague er fyrir körfuboltann eins og Meistaradeild Evrópu er fyrir evrópska fótboltann. Jordan Mickey hafði vissulega heppnina með sér í þessari körfu hans í öðrum leikhluta og skoraði eiginlega óaðvitandi. Sending serbneska bakvarðarins Stefan Marković var hinsvegar svo „pottþétt“ að boltinn fór af höfði Jordan Mickey og í körfuna eins og sjá má hér fyrir neðan.Það er vissulega hægt að fullyrða að svona körfur sjái maður nú ekki á hverjum degi í körfuboltanum og hvað þá í sterkustu deildinni í Evrópu. Jordan Mickey var þarna að skora sitt sjöunda stig og Stefan Marković að senda sína aðra stoðsendingu í leiknum. Khimki vann leikinn á endanum örugglega með sextán stigum, 85-69. Jordan Mickey skoraði sautján stig og hitti úr 7 af 11 skotum en Stefan Marković var með 5 stoðsendingar og 12 stig.
Körfubolti Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Bein útsending: Spáin og upphitun fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Sport Fleiri fréttir Bein útsending: Spáin og upphitun fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA Sjá meira