Besti ungi leikmaður Evrópu 2008 semur við tyrkneskt B-deildarlið þrítugur að aldri Arnar Geir Halldórsson skrifar 31. júlí 2018 07:30 Anderson (8) var í stóru hlutverki í stórkostlegu liði Man Utd fyrir tíu árum síðan vísir/getty
Tyrkneska B-deildarliðið Adana Demirspor hefur heldur betur nælt sér í liðsstyrk fyrir komandi leiktíð þar sem fyrrum miðjumaður Manchester United og besti ungi leikmaður Evrópu árið 2008 hefur samið við félagið. Um er að ræða Brasilíumanninn brosmilda Anderson sem var í miklum metum hjá stuðningsmönnum Man Utd fyrir nokkrum árum síðan en óhætt er að segja að ferill kappans hafi ekki náð þeim hæðum sem búist var við. Anderson gekk í raðir Man Utd frá Porto sumarið 2007 og þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur að aldri lék hann nokkuð stórt hlutverki í frábæru liði Man Utd leiktíðina 2007/2008 þegar hann hjálpaði liðinu að vinna bæði ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu. Alls vann Anderson fjóra Englandsmeistaratitla á Old Trafford. Hann var á mála hjá Man Utd allt til ársins 2015 þó tækifærunum hafi fækkað með hverju árinu og fór að lokum svo að hann yfirgaf Man Utd endanlega og hélt til heimalandsins þar sem hann samdi við Internacional í ársbyrjun 2015. Anderson náði ekki að festa sig í sessi í brasilísku úrvalsdeildinni og var samningi hans við Internacional rift fyrr á þessu ári. Nú er Anderson, þrítugur að aldri, búinn að finna sér nýtt lið og hefur samið við Adana Demirspor sem leikur í tyrknesku B-deildinni en liðið hafnaði í 14.sæti deildarinnar á síðustu leiktíð. Tveir Íslendingar munu mæta Anderson í vetur en Kári Árnason samdi nýverið við Genclerbirligi og þá er Theodór Elmar Bjarnason hjá Elazigspor.Adana Demirspor'umuz dünya yıldızı Anderson Oliveira ile sözleşme imzaladı https://t.co/xNsT0puEMO pic.twitter.com/B3DOK47XVE— Adana Demirspor (@AdsKulubu) July 30, 2018 pic.twitter.com/l9yma1CVkr— Adana Demirspor (@AdsKulubu) July 30, 2018
Fótbolti Mest lesið Bein útsending: Hildur hætti eftir 30. hring og nú eru níu eftir Sport Rakel María endaði upp á spítala: „Ég á bara ótrúlega erfitt“ Sport Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn FIFA setur Viðar Örn í sex mánaða bann Fótbolti Skiptar skoðanir á nýju merki Njarðvíkur Körfubolti Besti dómarinn í deildinni á von á sínu þriðja barni Fótbolti Stones tryggði City sigur í uppbótatíma Enski boltinn Albert fór meiddur af velli en liðið fór á kostum Fótbolti Í beinni: Haukar - Cocks | Hanar í heimsókn Handbolti Hættir að elska Jürgen Klopp: „Hefur þú gleymt öllu?“ Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Fylkir - KR | Sjóðheitir KR-ingar mæta föllnum Fylkismönnum Í beinni: HK - Fram | Síðasti séns HK-manna Í beinni: Barcelona - Sevilla | Prófraun fyrir Börsunga FIFA setur Viðar Örn í sex mánaða bann Elías Már á skotskónum Hlín heldur áfram að skora en fyrsta tapið hjá Guðrúnu Liverpool tyllti sér á toppinn Stones tryggði City sigur í uppbótatíma Albert fór meiddur af velli en liðið fór á kostum Sædís meistari á fyrsta ári í atvinnumennsku Kvaradona kom toppliðinu til bjargar Cecilía hélt hreinu á móti toppliðinu Hættir að elska Jürgen Klopp: „Hefur þú gleymt öllu?“ Sjáðu dramatísk sigurmörk, vítaklúður Gylfa og öll mörkin úr Bestu í gær Besti dómarinn í deildinni á von á sínu þriðja barni Messi kom inn á í hálfleik og skoraði þrennu PSG aftur á toppinn Sjálfsmark skaut Juvents á toppinn Diljá Ýr skoraði í stórsigri Leuven Harry Kane með þrennu í stórsigri Bayern Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Real Madrid upp að hlið Barcelona á toppnum „Þarft að vinna uppi á Skaga til þess að verða Íslandsmeistari“ Sjáðu sigurmarkið sem dæmt var af Skagamönnum Birkir kom inn á og skoraði sárabótarmark „Óskiljanlegt að setja Erlend í þetta verkefni" „Gæti verið minn síðasti leikur á laugardaginn“ Everton vann og endurkomusigrar hjá Leicester og Villa Þrjú stig í sarpinn en Orri leitar að markaskónum Arsenal mistókst að koma sér á toppinn Sjá meira