Fótbolti

Rúnar Már setti tvö í tapi

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Rúnar Már Sigurjónsson
Rúnar Már Sigurjónsson vísir/getty
Tveir Íslendingar voru í eldlínunni í svissnesku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Rúnar Már Sigurjónsson var allt í öllu hjá St. Gallen sem tapaði 2-3 fyrir Luzern en Rúnar Már skoraði bæði mörk St. Gallen og er skagfirski miðjumaðurinn kominn með níu mörk á tímabilinu.

Fyrra mark Rúnars kom af vítapunktinum og kom hann þá liði sínu í 1-0. Hann jafnaði svo metin í 2-2 á 63.mínútu en Luzern gerði sigurmarkið á lokamínútum leiksins.

Á sama tíma lék Guðlaugur Victor Pálsson allan leikinn á miðju FC Zurich sem vann góðan útisigur á Thun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×