Lífið

Heidi Klum hljóp upp á svið eftir að hafa ýtt á gullhnappinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Makayla Phillips gæti sannarlega farið langt í ár.
Makayla Phillips gæti sannarlega farið langt í ár.
Hin fimmtán ára Makayla Phillips fór heldur betur á kostum í áheyrnaprufu í skemmtiþættinum America´s Got Talent á dögunum.

Þá mætti hún og flutti lagið Warrior eftir Demi Lovato. Phillips var vel studd af fjölskyldumeðlimum og vinum í salnum.

Flutningurinn var algjörlega frábær og fangaði hún heldur betur athygli dómarana.

Svo mikið að Heidi Klum sá sig knúna til að ýta á gullhnappinn eftirsótta eins og sá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.