Fótbolti

Albert lagði upp mark í stórsigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Albert Guðmundsson
Albert Guðmundsson vísir/anton
Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Jong PSV þegar liðið fékk FC Oss í heimsókn í hollensku B-deildinni í fótbolta í dag.

Skemmst er frá því að segja að unglingalið vann öruggan fjögurra marka sigur, 5-1.

Alberti var skipt af velli á 78.mínútu í stöðunni 4-1 en þá hafði hann lagt upp eitt mark.

Albert æfir með aðalliði félagsins og leikur lykilhlutverk í unglingaliðinu sem situr í 4.sæti B-deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×