Aubameyang var í fyrsta skipti með fyrirliðabandið hjá Arsenal í gær eftir að hafa verið gerður að fyrirliða eftir læti Granit Xhaka í síðasta mánuði.
Hann var með bandið í gær er Arsenal tapaði 2-0 fyrir Leicester og heldur vandræði liðsins áfram. Liðið er í 6. sæti deildarinnar eftir tapið og byrjað að hitna verulega undir Unai Emery.
Pierre-Emerick Aubameyang in car crash as £270,000 Lamborghini is left crumpled on roadhttps://t.co/jeswyVbfdepic.twitter.com/SSwFvT6yQQ
— Mirror Football (@MirrorFootball) November 10, 2019
Þetta voru hins vegar ekki einu slæmu fréttirnar fyrir Aubameyang um helgina. Á föstudaginn klessti hann Lamgborghini-bílinn sinn sem kostar rúmlega 43 milljónir króna.
Ekki er talið að neinn hafi meiðst í árekstrinum en Aubameyang var á leið heim af æfingu á föstudaginn er atvikið átti sér stað.