Viðskipti innlent

Önnur starfmannaleiga Ingimars í þrot

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Skrifstofur Manngildis voru við Auðbrekku í Kópavogi.
Skrifstofur Manngildis voru við Auðbrekku í Kópavogi. Vísir/Vilhelm

Starfsmannaleigan Manngildi ehf. hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta. Fyrirtækið var fyrirferðamikið í fjölmiðlum í lok síðasta árs vegna rannsóknar á útgáfu falsaðra skilríkja fyrir níu erlenda starfsmenn Manngildis. Eigandi starfsmannaleigunnar, Ingimar Skúli Sævarsson, var handtekinn, látinn laus að lokinni yfirheyrslu og ítrekaði sakleysi sitt í yfirlýsingum til fjölmiðla.

Greint er frá því í Lögbirtingablaðinu að Manngildi hafi verið úrskurðað gjaldþrota þann 30. október síðastliðinn. Samkvæmt ársreikingi félagsins fyrir árið 2017 var eini hluthafi í félaginu fyrrnefndur Ingimar. Hann hafði áður rekið starfsmannaleigu, Verkleiguna ehf., sem jafnframt varð gjaldþrota.

Verkleigan var engu minna umdeild en Manngildi. Þannig sætti Ingimar rannsókn vegna gruns um að hafa vantalið skattskylda veltu Verkleigunnar, sem Stundin segir hafa numið 237 milljónum króna, og meints 57 milljóna skattaundanskots á síðari hluta árs 2017. Fyrirtækið fór síðan í þrot í október 2018 eftir að skattrannsóknarstjóri hafði kyrrsett eignir félagsins. 

Málefni starfsmannaleigunnar Manngildis voru sem áður segir einnig á borði lögreglunnar um tíma. Lögreglu grunaði að fölsuð vegabréf hafi verið notuð til að útvega níu erlendum starfsmönnum Manngildis kennitölu hjá Þjóðskrá. Réðst hún því til atlögu á skrifstofur fyrirtækisins í Kópavogi og leiddi tíu manns út í járnum, þeirra á meðal var eigandinn Ingimar.

Honum þótti lögreglan hafi farið offari og misbeitt valdi sínu í aðgerðum sínum. Lögfræðingur starfsmannaleigunnar, Tryggvi Agnarsson, sagði í samtali við fréttastofu að starfsemin og Ingimar hafi verið dregna inn í málið að óþörfu. Ingimar var laus ferða sinna eftir skýrslutöku.

Tryggvi Agnarsson var lögmaður Manngildis.Vísir/JKJ

Deilum um Manngildi var þó ekki lokið þar. Lögmaðurinn Tryggvi var sakaður af forsvarsmönnum nafntoguðu starfsmannaleigunnar Manna í vinnu um að hafa „brotið alvarlega og ítrekað gegn ákvæðum siðareglna lögmanna,“ með ummælum sínum í viðtali við Vísi í fyrra, meðan vegabréfarannsóknin stóð sem hæst.

Þar sagði Tryggvi, og átti þar við Ingimar skjólstæðing sinn:

„Hann kom ekki inn í verkleiguna sem var hreinsuð að innan af glæpalýðnum fyrr en í október í fyrra,“ sagði Tryggvi. Vísaði hann til harðvítugra deilna milli Ingimars Skúla og Höllu Rutar Bjarnadóttur sem hófu samstarf hjá Verkleigunni árið 2016. Eftir gjaldþrot Verkleigunnar stofnaði Ingimar Skúli Manngildi en Halla Rut Menn í vinnu ásamt fleiri fyrrverandi starfsmönnum hjá Verkleigunni.

„Það eru allar líkur að þessi kona og samstarfsmenn hennar hafi staðið að þessu.“ 

Halla Rut og öðrum aðstandendum Manna í vinnu fannst Tryggvi með ummælum sínum hafa framið refsiverðan verknað og kærðu hann til úrskuðrðarnefndar lögmanna. Nefndin komst þó að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið sýnt fram á að Tryggvi hafi gert Mönnum í vinnu neitt sem stríði gegn lögum eða siðareglum lögmanna. Kröfum Manna í vinnu var því hafnað - rúmu hálfu ári áður en starfsmannaleigan lagði upp laupana.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×