Fótbolti

Sjáðu hundrað prósent íslenskt sigurmark í áströlsku deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir í leik með Adelaide United.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir í leik með Adelaide United. Getty/Mark Brake
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir tryggði Adelaide United 1-0 sigur á Brisbane Roar í lokaleik deildarkeppninnar í áströlsku kvennadeildinni.

Gunnhildur Yrsa var þarna að skora fyrsta markið sitt á tímabilinu en hún hefur spilað stórt hlutverk á miðju Adelaide United liðsins.

Sigurmarkið verður ekki íslenskara því Gunnhildur Yrsa skoraði það með laglegum skalla eftir fyrirgjöf frá Fanndísi Friðriksdóttur en það má sjá það hér fyrir neðan.





Þetta var fimmti sigur Adelaide United á leiktíðinni en hann dugaði ekki liðinu til að komast í úrslitakeppnina. Liðið vann aftur á móti báða leiki sína á móti Brisbane Roar sem er í öðru sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×