Fótbolti

Óvæntur sigur Marokkó á Fílabeinsströndinni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Youssef En-Nesyri fagnar sigurmarkinu.
Youssef En-Nesyri fagnar sigurmarkinu. vísir/getty
Marokkó er með fullt hús stiga í D-riðli Afríkukeppninnar eftir 1-0 sigur á Fílabeinsströndinni í annarri umferð riðilsins.

Fyrsta og eina mark leiksins kom á 23. mínútu en þá skoraði framherji Leganes, Youssef En-Nesyri, sigurmark leiksins.







Eftir sigurinn er Marokkó með sex stig á toppi riðilsins en Fílabeinsströndin er í öðru sætinu með þrjú stig.

Namíbía og Suður-Afríku eru án stiga en þau mætast síðar í kvöld.

Fílabeinsströndin spilar svo við Namibíu í síðustu umferðinni og Marokkó við Suður-Afríku en þeir leikir verða spilaðir á mánudag.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×