Gul viðvörun tekur gildi um hádegisbil á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra og eystra í dag en um klukkan 18 á Austurlandi að Glettingi.
Spáð er suðvestanstormi eða -roki með hviðum allt að 40 m/s við Ísafjörð, Bolungarvík og Hnífsdal. Þá gætu hviður farið upp í 50 m/s við fjöll, t.d. á Tröllaskaga, Langanes, á Jökuldal og í Vopnafirði. Ferðalangar á þessum slóðum eru beðnir að fara varlega en veður verður varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir jafnframt að í dag hvessi jafnt og þétt á norðanverðu landinu en mun hægara verður syðra og súld á köflum vestast á landinu. Mjög hlýtt loft streymir nú yfir landinu og því getur slegið niður, einkum austast þar sem hiti gæti enn farið uppundir 20 stig.
„Þó svo að hitatölur á borð við 10 til 15 stig verði líklega algengastar á því svæði þegar líður á daginn, gæti hlýnað talsvert meira ef allt gengur upp og við því séð hitatölur sem næðu uppundir 20 stig. En það skýrist ekki fyrr en í kvöld og jafnvel ekki fyrr en á morgun þegar veður lægir,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Þá er gert ráð fyrir að kólni á morgun og vænta má svalari umhleypingum næstu daga.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag:Vestan 15-20 m/s við N-ströndina um morguninn, en lægir síðan smám saman og rofar til. Mun hægari vindur og rigning eða slydda með köflum SV-til, en styttir upp seinnipartinn. Frost víða 0 til 5 stig, en hiti 1 til 5 stig syðst.
Á föstudag:
Gengur í sunnan og suðaustan 8-15 m/s með slyddu eða rigningu, en lengst af þurrt fyrir austan. Hlýnar í veðri og hiti 2 til 7 stig seinni partinn. Hægari, vestlægari og víða dálítil væta um kvöldið.
Á laugardag:
Breytileg átt yfirleitt 5-13 m/s. Þurrt að kalla fyrripartinn og fremur svalt, snjókoma N-til, en slydda eða rigning syðra.
Á sunnudag:
Útlit fyrir norðanátt með éljum og kólnandi veður, en yfirleitt léttskýjað S- og V-lands. Úrkomuminna síðdegis og víða frost.
Á mánudag:
Gengur líklega í hvassa austanátt með úrkomu víða á landinu, einkum S- og V-lands. Áfram svalt veður, en hlánar sunnantil.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir norðalæga átt með ofankomu um landið norðan- og austanvert en þurrt að kalla syðra. Vægt frost.