Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Viðkvæmar myndir og myndbönd af íslenskum unglingum eru birt á fjölda Instagram-reikninga sem jafnvel eru öllum opnir. Framkvæmdastjóri Heimilis og skóla óttast að stefnumótaforrit sem ætluð eru unglingum séu komin til að vera og því gegni fræðsla lykilhlutverki. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 kl. 18:30.

Einnig tökum við stöðuna á kjaraviðræðum, segjum frá nýrri könnun um líðan innflytjenda, segjum frá hita- og kuldametum í heiminum og fylgjumst með kennslu í slímgerð í Bíó Paradís.

Þetta og margt fleira í þéttum fréttapakka á samtengdum rásum Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis kl. 18:30




Fleiri fréttir

Sjá meira


×