Borche elskar Bubba Morthens Henry Birgir Gunnarsson skrifar 29. apríl 2019 15:00 Borche er með góðan tónlistarsmekk.
Einn heitasti aðdáandi Bubba Morthens er hinn magnaði þjálfari ÍR, Borche Ilievski, og það truflar hann ekkert að Bubbi skuli vera KR-ingur og syngi þess utan KR-lagið. „Ég hef verið mikill aðdáandi hans síðan ég þjálfaði á Ísafirði. Það skemmir svo ekki fyrir að hann sé sköllóttur eins og ég. Ég er mikill aðdáandi,“ sagði Borche léttur fyrir fyrsta leik sinna manna gegn KR í úrslitarimmu Íslandsmótsins. „Það er allt í lagi mín vegna að Bubbi skuli styðja KR og syngja KR-lagið. Við tölum við Bubba eftir þetta og kannski fáum við hann til þess að styðja ÍR aðeins líka.“ Borche tjáði blaðamanni sömuleiðis að hann væri meira en til í að hitta Bubba. Uppáhaldslagið hans með Bubba er síðan „Serbian Flower“ af samnefndri plötu frá árinu 1988 þar sem Bubbi söng lög á ensku. Frábær plata. Serbian Flower er auðvitað „Serbinn“ á ensku. Þriðji leikur liðanna fer fram í DHL-höllinni í kvöld klukkan 19.15 og hefst upphitun á Stöð 2 Sport klukkan 18.30. Grillað verður frá 17.30 og hleypt verður inn í húsið klukkan 18.00 og er fastlega búist við því að fólk þurfi að standa á pöllunum í kvöld. „Það verður stærsta Miðja sögunnar mynduð hjá KR í kvöld. Fólk er komið í gírinn og fólk á öllum aldri er að melda sig inn í stemninguna,“ sagði Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR. „Þeir sem hafa verið að kalla DHL-höllina bókasafnið verða fyrir vonbrigðum í kvöld.“ Hægt er að tryggja sér miða á netinu og forðast með því biðraðir. Miðasalan er hér.Klippa: Borche elskar Bubba
Dominos-deild karla Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Sport Bein útsending: Spáin og upphitun fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Bein útsending: Spáin og upphitun fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA Sjá meira