Íhaldsflokkurinn missir 1334 menn Andri Eysteinsson skrifar 4. maí 2019 00:05 Flokkar May og Corbyn fara illa út úr sveitastjórnarkosningunum. Vísir
Breski íhaldsflokkurinn fer illa út úr sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru í Bretlandi í vikunni. Frjálslyndir Demókratar bættu hins vegar við sig flestum mönnum. Kosið var um 8798 sæti í sveitarstjórnum víðs vegar um Bretlandseyjar. Íhaldsflokkurinn, undir stjórn forsætisráðherrans Theresu May fór illa út úr kosningunum og missti 1334 sveitarstjórnarmenn frá síðustu kosningum, flokkurinn missti einnig meirihluta sinn í 44 sveitarstjórnum. Flokkurinn er þó enn stærstur á landsvísu með yfir 3500 sveitarstjórnarmenn og eru í meirihluta í 93 sveitarstjórnum. Verkamannaflokkurinn tapaði einnig mönnum og meirihlutum, fulltrúum Verkamannaflokksins í sveitastjórnum fækkaði um 82 í kosningunum og eru þeir nú 2023. Þá missti flokkurinn meirihluta sinn í sex sveitarfélögum af 66. Frjálslyndir demókratar gátu leyft sér að gleðjast yfir niðurstöðu kosninganna en flokkurinn bætti við sig 703 mönnum og náði meirihluta í 18 sveitarfélögum. Minni flokkar nutu góðs af fylgistapi risanna tveggja og bættu græningjar við sig 194 mönnum en Öfgahægri flokkurinn UKIP missti 145 menn. Theresa May, forsætisráðherra og formaður Íhaldsflokksins, hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir störf sín undanfarnar vikur og mánuði og er ljóst að niðurstöður kosninganna munu ekki létta á álaginu á forsætisráðherrann.
Bretland Kosningar í Bretlandi Mest lesið Lést í umferðarslysi við Álfabakka Innlent Tuttugu og þrjár konur stíga fram og fórnarlömb raðnauðgara talin á sjöunda tug Erlent Erlendir ferðamenn gripnir glóðvolgir Innlent „Auðvitað lét ég hann heyra það“ Innlent Þingkonur þjarma að heilbrigðisráðherra Innlent Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Erlent Þurfa ekki að skila Stálskipaauðnum Innlent Handtökur hér á landi þegar stór barnaníðssíða var tekin niður Innlent „Þetta er bara brandarakvöld“ Innlent Hinir handteknu alveg ótengdir Innlent Fleiri fréttir Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Fjölga flugmóðurskipum og herþotum í Mið-Austurlöndum Skoða kostnaðinn við yfirtöku Grænlands Loka síðasta kolaorkuveri Finnlands Demókratar unnu dýrustu dómarakosningar Bandaríkjanna Tuttugu og þrjár konur stíga fram og fórnarlömb raðnauðgara talin á sjöunda tug Talaði í 25 tíma og sló Bandaríkjamet Lýsa yfir vikulangri þjóðarsorg Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Sjá meira