Fótbolti

Vísbendingar um að forseti PSG hafi brotið reglur

Kjartan Kjartansson skrifar
Bréf Khelaifi virðist benda til þess að eigandi PSG hafi lagt á ráðin um að greiða umboðsmanni á bak við tjöldin.
Bréf Khelaifi virðist benda til þess að eigandi PSG hafi lagt á ráðin um að greiða umboðsmanni á bak við tjöldin. Vísir/EPA
Gögn sem breska blaðið The Guardian hefur undir höndum benda til þess að Nasser el-Khelaifi, forseti franska knattspyrnuliðsins Paris Saint-Germain hafi óskað eftir fjármunum frá Katar til að greiða umboðsmanni knattspyrnumanns. Slíkt stríðir gegn reglum Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) og franska knattspyrnusambandsins.

Í bréfi til starfsmannastjóra verðandi emírs Katars, biður Khelaifi um tvær milljónir evra til að greiða umboðsmanni Javiers Pastore sem franska liðið keypti af ítalska liðinu Palermo á 40 milljónir evra árið 2011. Þar óskaði hann einnig eftir 200.000 evrum til viðbótar fyrir katarskt einkafyrirtæki bróður hans, að sögn The Guardian.

Samkvæmt reglum FIFA mega forseta knattspyrnuliða ekki greiða umboðsmönnum persónulega. Franska knattspyrnusambandið segir að hafi Khelaifi greitt umboðsmanni væri það einnig brot á þarlendum reglum. Aðeins leikmenn og félög megi greiða umborðsmönnum.

Þá virðist Khelaifi hafa logið að dómara þegar hann hélt því fram að hann hefði ekki haft vald til að óska eftir fjármununum.

Paris Saint-Germain er í eigu Qatar Sports Investments sem er í eigu katarska ríkisins. Það er þannig í reynd í eigu Tamim bin Hamad al-Thani, emírs Katars. Í bréfi Khelaifi þar sem hann óskar eftir fjármununum til að greiða umboðsmanni Pastore segist hafa fengið munnlegt samþykki emírsins.

Lögmenn Khelaifi segjast ekki geta staðfest hvort bréfið sé ekta. Saka þeir nágrannaríki Katars um að dreifa röngum upplýsingum og tilbúnum skjölum um landið. Talsmenn al-Thani neituðu að tjá sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×