Lífið samstarf

„Geggjaðir“ hjólahjálmar hjá Nutcase

Nutcase.is kynnir
Litríkir og flottir hjálmar á alla fjölskylduna hjá Nutcase.
Litríkir og flottir hjálmar á alla fjölskylduna hjá Nutcase.
Nutcase.is selur reiðhjólahjálma á alla fjölskylduna. Hjálmarnir eru litríkir og töff og búnir þægindum eins og segulfestingum sem hægt er að smella saman án þess að þurfa að nota báðar hendur. Snúningshnappur aftan á hjálminum stillir stærðina svo hjálmurinn sitji þétt.

„Það besta við Nutcase hjálmana, fyrir utan öryggið, er hversu flottir þeir eru. Þegar krakkarnir fá að velja sér hjálm sjálf sem þeim finnst flottur þá er ekkert mál að fá þau til að nota hann. Hjálmarnir koma einnig með skyggni sem hægt er að taka af og smella á eftir þörfum. Hjálmarnir eru með endurskini allan hringinn og við fáum nýja liti í verslunina á hverju ári. Segulsmellan undir hökuna er líka sérstaklega þægileg þar sem engin hætta er á að krakkarnir klemmi sig. Þau geta smellt hjálminum á sig með einni hendi og án þess að fara úr vettlingunum,“ segir Guðmundur Már Ketilsson, eigandi Nutcase.is.

Nutcase samanstendur af þrem línum hjálma, Baby Nutty fyrir allra yngstu börnin, Little Nutty fyrir 2 til 9 ára og Street fyrir 10 ára og eldri. Að auki eru í boði línur sem nefnast Zone og Metroride. Auk þess að fást í netverslun Nutcase.is má fá hjálmana hjá GÁP í Reykjavík, Jötunn á Selfossi og einnig eru söluaðilar Nutcase á Ísafirði og Egilsstöðum.

Þá verður Nutcase.is með á Haust Pop-Up markaði netverslana um helgina.

„Þetta verður í þriðja sinn sem við tökum þátt í Pop-Up markaðnum og það er alltaf jafn gaman. Við ætlum að bjóða 20 % afslátt af öllum hjálmum alla helgina,“ segir Guðmundur.

Markaðurinn fer fram í Víkingsheimilinu í Fossvogi og hefst 31. Ágúst og stendur til 1. September. Opið verður milli klukkan 11 og 17.

Fylgist með á Facebook og á Instagram.



Þessi kynning er unnin í samstarfi við Nutcase.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.