Rio Ferdinand sá stress hjá leikmönnum Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. janúar 2019 10:30 Leikmenn Liverpool fyrir leikinn í gær. Getty/Robbie Jay Barratt
Pressan var mikil á Liverpool liðinu í Leicester leiknum í gær og einn sigursælasti miðvörður enska boltans sá varúðarmerki á liðinu. Liverpool er með það algjörlega í sínum höndum hvort liðið endi 29 ára bið eftir Englandsmeistaratitlinum en þá þurfa leikmenn liðsins að halda áfram að spila sinn leik. Rio Ferdinand varð sex sinnum Englandsmeistari með Manchester United og hann þekkir vel stöðuna sem leikmenn Liverpool eru í núna. Hann hefur smá áhyggjur af Liverpool eftir leik gærkvöldsins. Lærisveinum Jürgen Klopp mistókst þá að ná sjö stiga forskoti á Manchester City á toppnum en jafntefli við Leicester þýðir að það munar nú fimm stigum á liðunum.Daily Mail: Rio Ferdinand says Liverpool's players 'look nervous' and are feeling pressures of a title challenge https://t.co/9lwisN7oaR#lfc#ynwapic.twitter.com/J2Dti6npsI — Liverpool News 365 (@iLiverpoolApp) January 30, 2019„Ég tók eftir stressi í Liverpool-liðinu. Það er eitthvað sem Klopp þarf að taka á. Þú vilt ekki sjá í stress í liðinu þínu þegar svona mikið er eftir af mótinu,“ sagði Rio Ferdinand við BT Sport. Liverpool fékk draumabyrjun, komst í 1-0 í upphafi og fékk nokkur góð færi eftir það. Fljótlega komst Leicester hins vegar inn í leikinn og lítið gekk hjá Liverpool að skapa sér góð færi eftir það. Liverpool átti vissulega að fá víti í seinni hálfleik en mistök í uppbótatíma fyrri hálfleiks kostaði liðið jöfnunarmark. „Mér fannst þeir vera stressaðir, stuðningsmennirnir voru stressaðir og það hafði áhrif á leikmennina,“ sagði Ferdinand.Rio Ferdinand: “Liverpool looked nervous.” Agree? https://t.co/IlI4DXwfHB — Anfield HQ (@AnfieldHQ) January 30, 2019„Ég myndi hafa smá áhyggjur af þessu og því að í liðið vantaði mann til að taka ábyrgð í staðinn fyrir að ýta henni yfir á næsta mann,“ sagði Ferdinand. Rio Ferdinand vann enska titilinn 2002–03, 2006–07, 2007–08, 2008–09, 2010–11 og 2012–13. Hann var í liði ársins á fjórum af þessum sex meistaratímabilum sínum.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Hildur hætti eftir 30. hring og nú eru níu eftir Sport Rakel María endaði upp á spítala: „Ég á bara ótrúlega erfitt“ Sport Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn FIFA setur Viðar Örn í sex mánaða bann Fótbolti Skiptar skoðanir á nýju merki Njarðvíkur Körfubolti Besti dómarinn í deildinni á von á sínu þriðja barni Fótbolti Stones tryggði City sigur í uppbótatíma Enski boltinn Albert fór meiddur af velli en liðið fór á kostum Fótbolti Hættir að elska Jürgen Klopp: „Hefur þú gleymt öllu?“ Fótbolti Sexfaldur Ólympíugullverðlaunahafi dauðvona Sport Fleiri fréttir Liverpool tyllti sér á toppinn Stones tryggði City sigur í uppbótatíma Everton vann og endurkomusigrar hjá Leicester og Villa Arsenal mistókst að koma sér á toppinn Langþráð og laglegt mark Höjlund tryggði Man. Utd sigurinn Willum Þór með mikilvægt mark í endurkomusigri Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn „Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“ Mainoo frá í nokkrar vikur Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Pogba segir að danssagan sé lygi Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Sjá meira