Vilhjálmur gerði viðbrögð SA að umfjöllunarefni í erindi sem hann hélt á samstöðufundi rútubílstjóra í Vinabæ að Skipholti 33 í dag. Þar eru bækistöðvar verkfallsvaktar hvar tekið er við umsóknum fyrir greiðslu úr vinnudeilusjóði.
Af leiðaraskrifum ákveðinna aðila að dæma, segir Vilhjálmur, að það sé sem verkalýðsforystan séu glæpamenn fyrir að gera þá kröfu að fólk geti lifað af launum sínum. Vilhjálmur segir að ef það sé glæpur skuli hann bera þann titil.
Þrátt fyrir að Vilhjálmur segir að hræðsluáróðurinn hafi aldrei verið jafn mikill og nú þá segir að hann inntakið sé alltaf það sama þegar samið er um kaup og kjör láglauna- og verkafólks.

Inntak orðræðunnar alltaf það hið sama
Hann rifjar upp orðræðuna sem var uppi árið 2008 þegar greiningardeildir bankanna sögðu að kjarasamningar íslensks verkafólks væri það eina sem ógnaði íslensku samfélagi.„Við munum öll hvað gerðist nokkrum mánuðum seinna,“ segir Vilhjálmur og vísar til banka-og fjármálahrunsins á haustmánuðum ársins 2008.
Vilhjálmur segir að það sé ávallt sami hræðsluáróðurinn sem sé hafður í frammi í hvert einasta skipti sem samið er um kjör verkafólks. Hann bendir á að árið 2013 hafi SA spáð því að verðbólga gæti jafnvel farið upp í 20%.
„Allt botnlaus hræðsluáróður sem dynur á okkur í hvert einasta sinn“.
Vilhjálmur opnaði sig á samstöðufundinum um ástæðuna fyrir því að hann hóf störf hjá verkalýðsfélaginu. Hann sagðist þekkja það af eigin raun hvernig það væri að reyna að ná endum saman á lágmarkslaunum. Hann geti aldrei gleymt því þegar hann var 27 ára, fjögurra barna faðir og eina fyrirvinnan. Þegar tíu dagar voru eftir af mánuðinum hefði hann aðeins örfáar krónur til að framfleyta sér og fjölskyldu sinni.
Vilhjálmur segir að það sé siðferðisleg skylda samfélagsins að allir geti haldið mannlegri reisn. Kjörin sem fólkið á lægstu laununum búi við sé íslensku samfélagi, samtökum atvinnulífsins og ríkisstjórninni til skammar.
„Það er meginverkefni þessa kjarasamninga sem við stöndum nú í að lagfæra þessi kjör,“ segir Vilhjálmur sem bætir við að baráttunni ljúki ekki með einum kjarasamningum. Baráttan sé langhlaup.

Vill að stjórnvöld grípi inn í
Vilhjálmur beinir spjótum sínum að ríkisstjórninni þegar hann gerði verðtrygginguna að umfjöllunarefni sínu undir lok ræðu sinnar.„Við erum hér með verðtryggingu sem sogar stóran hluta ráðstöfunartekna burtu og yfir til fjármálakerfisins. Um þetta kerfi standa hagsmunaöflin eins og grenjandi ljón og passa sig á því að við náum ekki að breyta þessu. Þetta eru allt mál sem við eigum í viðræðum við stjórnvöldum um og ég ætla að eygja þá von að við finnum einhvern árangur í þeirri vinnu.“
Vilhjálmur segist vona heitt og innilega að hann muni geta náð góðum kjarasamningum fyrir félagsmenn sína.
Ræðu Vilhjálms má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.