
Segja starfsmanni Reykjalundar hafa verið hótað vegna fréttaumfjöllunar

„Við brottvikningu framkvæmdastjóra lækninga þá skapaðist óvissuástand þar sem það embætti ber ábyrgð á faglegri þjónustu gagnvart forstjóra. Nú hefur þeirri óvissu verið eytt og er það ávallt forstjóri sem ber hina endanlegu ábyrgð á veitingu heilbrigðisþjónustu stofnunnar,“ segir í yfirlýsingunni sem Magðalena Ásgeirsdóttir, formaður læknaráðs Reykjalundar, sendi fyrir hönd starfsmanna.
Sjá einnig: Segir uppsagnir Birgis og Magnúsar nauðsynlegar
Í yfirlýsingunni kemur fram að starfsmanni Reykjalundar hafi verið hótað í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar. Umræddur starfsmaður hafi tjáð sig við fjölmiðla um ástandið og í framhaldinu hafi honum borist tölvupóstur frá aðila tengdum stjórn SÍBS. Tölvupóstinn megi túlka sem hótun. „Við slíkt er ekki unað,“ segir að lokum.
Þá kemur fram að starfsfólki þykir miður að ástandið sem skapaðist hafi bitnað á skjólstæðingum sem voru til meðferðar hjá stofnuninni á þessum tíma og valdið þeim vanlíðan. Starfsemin hafi verið með eðlilegum hætti í dag og starfsfólk muni ávallt sinna sínum skjólstæðingum af fagmennsku og alúð.
Tengdar fréttir

Ósátt starfsfólk tekur aftur á móti sjúklingum á Reykjalundi
Starfsemi á endurhæfingarstöðinni Reykjalundi verður með eðlilegu horfi á morgun.

Ekki verði séð að stofnunin sé óstarfhæf án framkvæmdastjóra lækninga
Starfsemi Reykjalundar verður með eðlilegum hætti í dag. Starfsfólk Reykjalundar treysti sér ekki til að sinna sjúklingum því framkvæmdastjóra lækninga hafði verið sagt upp og enginn ráðinn í staðinn. Landlæknir tók fram í svari til stjórnarformanns SÍBS að ekki verði séð að stofnunin sé óstarfhæf án framkvæmdastjóra lækninga.

Ánægja með störf Birgis en augljóslega kom eitthvað upp á
Bryndís Haraldsdóttir, formaður Hollvinasamtaka Reykjalundar, segir að henni hugnist ekki ástandið á Reykjalundi. Forstjóra og yfirlækni hefur verið sagt upp, starfsfólk lagði niður störf í dag og sjúklingar voru ýmist sendir heim eða afboðaðir í dag.

Ólga á Reykjalundi: Sveinn fékk skýr skilaboð frá starfsmanni
Þegar vantraustsyfirlýsingin var borin undir Svein neitaði hann að tjá sig um það hvort hann hefði íhugað stöðu sína sem stjórnarformaður. Við það brást einn starfsmanna ókvæða við og sagði við Svein að staðan væri einföld, annað hvort hyrfi hann frá eða starfsmennirnir.