Myndin er sú sjöunda í aðalröð kvikmynda um X-Men fjölskylduna en alls eru þá myndir tengdar X-Men sögunum orðnar tólf. X-Men fjölskyldan glímir hér við erfiðasta andstæðing sinn til þessa og þarf að horfast í augu við að sá andstæðingur, er einn úr fjölskyldunni.
Breytingarnar leiða til ofurkrafta sem gera Jean að sterkustu X-Men persónunni. En Jean reynist erfitt að ná tökum á kröftunum og þarf auk þess að takast á við persónuleg vandamál. Jean missir stjórnina, sundrar X-Men fjölskyldunni og hótar að eyða plánetunni.

Leikstjóri myndarinnar, Simon Kinberg, segir nýju myndina skera sig úr.
„X-Men: Dark Phoenix er ólík öðrum ofurhetjumyndum að því leiti að hér standa persónur ekki upp og dusta af sér rykið eftir að hafa fallið fram af byggingum. Það er ákveðið raunsæi í þessari mynd og í henni fylgja afleiðingar athöfnum persóna. Í þessari mynd gerast sjokkerandi hlutir, dramatískir hlutir og ekki síst spennuþrungnir.“
Simon Kinberg er þekktur fyrir framleiðslu á The Martian, Logan, Fantastic Four og X-Men: Days of Future Past.

20th Century Fox fagnaði nýverið hápunkti x-Men sögunnar og 20 ára vinsældum X-Men myndanna.
Hér má sjá The Legacy video, stutt samantekt af sögu X-Men myndanna.
Leikstjórn: Simon Kinberg
Framleiðendur: Simon Kinberg, p.g.a., Hutch Parker, p.g.a., Lauren Shuler Donner, Todd Hallowell.
Leikarar: James McAvoy, Michael Fassbender, Jennifer Lawrence, Nicholas Hoult, Sophie Turner, Tye Sheridan, Alexandra Shipp, Kodi Smit-McPhee, Evan Peters, og Jessica Chastain.
Þessi kynning er unnin í samstarfi við Senu.