Strætó er lykillinn að léttari umferð Strætó kynnir 27. mars 2019 08:45 "Farþegar í strætó þurfa ekkert að hugsa um aksturinn eða umferðina og auðvitað aldrei að leita að stæði. Þvert á móti geta þeir nýtt tímann á leiðinni." Strætó
Umferðarteppa og endalaust hringsól í leit að bílastæði eru fastir liðir í lífi okkar flestra. Engum til sérstakrar gleði. Strætó er með lausn og býður fyrirtækjum að gera samning fyrir starfsmenn sína um sérstakt samgöngukort á góðum kjörum sem gildir á stór-höfuðborgarsvæðinu.Skúli Örn Sigurðsson, sölustjóri Strætó.„Fjölmörg fyrirtæki hafa gert samgöngusamning við okkur og stuðla þannig að betri lýðheilsu og reyna að leysa bílastæðavandann. Með því að gera samgöngusamning við okkur býðst starfsfólki að kaupa 12 mánaða samgöngukort í Strætó á verði 9 mánaða korts. Í dag eru yfir 370 fyrirtæki með samning við okkur svo þetta gengur vel”, útskýrir Skúli Örn Sigurðsson, sölustjóri Strætó. Samgöngukortið er hluti af langtímaverkefni Strætó um vistvænni samgöngumáta.Hægt að slaka á í Strætó og hanga á netinu„Umferðin á höfuðborgarsvæðinu þyngist á hverju ári og sífellt fleiri fara allra sinna ferða á einkabílnum. Fylgifiskur þyngri umferðar er aukin mengun, meira slit á vegum, færri bílastæði og lengri ferðatími. Við getum nánast gefið okkur að fyrir hvern starfsmann sem nýtir sér vistvænar samgöngur, minnkar álagið í umferðinni um einn heilan bíl. Tíminn sem fólk eyðir í bílnum á hverjum degi til og frá vinnu er gífurlegur og þá þarf að taka með í reikninginn tímann sem fer í að leita að bílastæði. Svo situr bíllinn meira og minna allan daginn óhreyfður fyrir utan vinnuna og svo fyrir utan heimilið,” segir Skúli.„Farþegar í strætó þurfa ekkert að hugsa um aksturinn eða umferðina og auðvitað aldrei að leita að stæði. Þvert á móti geta þeir nýtt tímann á leiðinni. Það er frítt net í vögnunum svo fólk getur þess vegna farið í gegnum vinnupóstinn sinn, horft á mynd eða bara slakað á með skemmtilegt hlaðvarp í eyrunum. Það er mjög gott fyrir taugarnar að taka Strætó”, segir Skúli.En hvað með þá sem finnst strætó lengi á leiðinni og nenna ekki að bíða úti í öllum veðrum? „Það spilar auðvitað mikið inn í hvar fólk býr og hvert það sækir vinnu, ferðatími getur því verið afar misjafn. Fólk er gjarnan með misgóðar minningar af Strætó fyrir 10-15 árum síðan og heimfærir það yfir á kerfið í dag. Þegar ég hitti fólk þá reyni ég að fræða þau um að þjónustan er allt öðruvísi í dag en hún var fyrir 10 árum síðan,“ segir Skúli. „Það kemur fólki til dæmis alltaf á óvart þegar ég segi því að leiðir 1 og 6 aka á 10 mínútna fresti á annatímum. Ný tækni hefur einnig gert kerfið aðgengilegra. Sem dæmi þá er hægt að nota appið til að kaupa staka miða, fylgjast með vögnunum í rauntíma og skipuleggja ferðina sína“, segir Skúli.Kynningar í fyrirtækjum„Það er svo einfalt að nota Strætó í dag. Við bjóðum þeim fyrirtækjum sem gera samning við okkur að við komum í heimsókn á vinnustaðinn til að kynna kosti þess að nota vistvænan ferðamáta. Þá er farið yfir hvað fólki stendur til boða, hvernig Strætó appið virkar, hvernig finna má staðsetningu á vagninum þínum, hvernig maður finnur bestu leiðina fyrir sig og eins hvar næsta biðskýli er. Það kemur nefnilega oft í ljós að fólk hefur ekkert spáð í Strætó sem valkost og uppgötvar kannski að næsta strætóskýli er bara við hliðina á heimilinu!“Samstarf við deilibílaþjónustuStrætó er einnig í samstarfi við deilibílaþjónustuna Zipcar og fylgir frí mánaðarleg áskrift af bílunum með samgöngukortum Strætó. „Bílarnir eiga stæði víðsvegar um borgina og fólk pantar þá í gegnum app og keyrir sjálft. Bílana má nota til að skutlast í styttri ferðir sem ekki er hægt að brúa með Strætó, til dæmis ef fólk þarf að skreppa úr vinnu með stuttum fyrirvara“ útskýrir Skúli. „Við leitum uppi samstarfsaðila sem styðja við vistvænan samgöngumáta. Við höfum einnig aukið tíðni strætó á annatíma og vagnarnir aka lengur á kvöldin og um helgar. Þessi þjónustuviðbót er hluti af markmiði okkar um að skapa umhverfisvænna samfélag enda fjölgar farþegum Strætó. Við viljum breyta því að Íslendingar séu „bílaþjóð” og fá alla um borð í strætó, þar er nóg pláss,” segir Skúli.Samgöngukortið er hægt að kaupa á heimasíðu Strætó, kostar 66.400, og einfalt mál er að greiðsludreifa í allt að 12 mánuði. Það er auðvelt að sjá hvort fyrirtæki þitt er með samning með því að slá inn kennitölu þess inn hérna.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Strætó.
Samgöngur Strætó Mest lesið Dvaldi í tjaldi á hringtorgi þar til lögreglan kom Lífið Starfsfólkið í fyrsta sæti og börnin í öðru Lífið Lesbíska dragdrottningin sem er að sigra tónlistarheiminn Tónlist Tinna Brá og Ari Eldjárn færðu fertugsafmælið út á sjó Lífið Myndaveisla: Metfjöldi á opnunarhelgi Hjarta Hafnarfjarðar Lífið Akureyringar komast loksins á Prikið Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun „Með 40 prósent af óþarfa með mér og virðist ekki læra af því“ Tíska og hönnun Stúlkur úr Listdansskóla Íslands hrepptu heimsmeistaratitil Lífið Stjörnulífið: „Þegar dagdrykkja fer úr böndunum“ Lífið Fleiri fréttir Nýjar merkjavörur í hverri viku á Pop up markaði Optical Studio Nú set ég mig í fyrsta, annað og þriðja sætið Bylgjulestin á Humarhátíðinni um helgina Látum ekki lúsmýið skemma fyrir okkur gleðina - Bitin burt Sólgleraugu og umgjarðir á 40-70% afslætti - Pop up Optical Studio Hægðirnar segja til um heilsufarið – rétt fóður mikilvægt Hefði ekki trúað áhrifunum! Frábær stemming á Jósmessuhátíð á Eyrarbakka Farðu ljómandi í sumarið! Það má leika sér með matinn Bylgjulestin mætir á Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka um helgina „Finnst ég geta afkastað mun meira yfir daginn“ Heimili myndast þegar fjölskyldan ver tíma þar saman Bylgjulestin í bongóblíðu á Þingvöllum Myndaveisla: Enn eitt vel heppnað Streetball mót X977 Allt sem þú þarft fyrir Midsummer hátíðina Bylgjulestin verður á Þingvöllum laugardaginn 15. júní Viltu bæta svefngæði þín? „Í fyrrakvöld bjargaði Tesla bifreið lífi mínu“ „Að skora í gegnum keðjunet er bara gæsahúðar móment“ Vandamálið við fætur, þeir eru í laginu eins og fætur Mosfellsdalur tók vel á móti Bylgjulestinni LED ljósameðferðir: Nýjasta trendið í húðumhirðu „Viltu passa mig?“ Sniglar höfða til kærleikans í umferðinni Fjörið með Bylgjulestinni heldur áfram í Mosfellsbæ Gerðu upplifunina að EM í fótbolta skemmtilegri með Match Attax Á leið á landsleik í London í boði Netgíró Sígild hönnun frá Rosti verður 70 ára Frábær stemming hjá Bylgjulestinni í Eyjum um helgina Verum vakandi í umferðinni í sumar Sjá meira