Balotelli mætir aftur á Etihad leikvanginn í september Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. ágúst 2019 14:00 Vincent Kompany reynir hér að róa skapheitann Mario Balotelli í einum af leikjum þeirra saman með Manchester City. Getty/Alex Livesey
Mario Balotelli hefur samþykkt að klæðast Manchester City treyjunni í að minnsta kosti eitt skipti í viðbót. Ítalski framherjinn, sem snéri á dögunum aftur heim til Brescia, mun taka þátt í hátíðarleik Vincent Kompany á Etihad leikvanginum í september. Balotelli var vinsæll meðal stuðningsmanna Manchester City og um leið fastagestur á síðum ensku blaðanna þegar hann lék með Manchester City frá 2010 til 2013.Mario Balotelli will return to the Etihad as part of the Manchester City legends squad in Vincent Kompany’s testimonial in September pic.twitter.com/NNomuYion7 — B/R Football (@brfootball) August 20, 2019Mario Balotelli skoraði 30 mörk í 80 leikjum fyrir Manchester City en það var einmitt Balotelli sem átti stoðsendinguna á Sergio Aguero þegar Aguero tryggði City Englandsmeistaratitilinn árið 2012. Sergio Aguero og David Silva munu einnig taka smá þátt í þessum leik og spila þar með lið Kompany sem kallast City Legends. Pep Guardiola mun stýra goðsagnaliði Manchester City en Roberto Martinez mun stýra úrvalsliði leikmanna úr öðrum liðum. Leikurinn fer fram 11. september næstkomandi en þá er í gangi landsleikjahlé. Meðal leikmanna sem ætla að spila með Manchester City þennan dag eru menn eins og Joe Hart, Joleon Lescott, Micah Richards, Pablo Zabaleta, Wayne Bridge, Gareth Barry, Nigel de Jong, Samir Nasri, Shaun Wright-Phillips, Stephen Ireland og Craig Bellamy. Allir spiluðu þeir með Vincent Kompany hjá Manchester City. Vincent Kompany lék með Mancester City frá 2008 til 2019 og vann tíu stóra titla sem fyrirliði liðsins þar af Englandsmeistaratitilinn fjórum sinnum.
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Unga hjólreiðakonan látin Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Körfubolti Fleiri fréttir Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Sjá meira