Ísak Ernir dæmdi eins og frægt er orðið tæknivillu á Unni Töru Jónsdóttur fyrir það að hún ætlaði inn á völlinn til þess að aðstoða sjúkraþjálfara sem hlúði að Sóllilju Bjarnadóttur.
„Stemningin var ömurleg,“ sagði Hermann Hauksson þegar málið var rætt í Domino's Körfuboltakvöldi.
„Líka út af því að það var ekki bara að hún hafi snúið sig, fólk hélt hún hefði fengið höfuðhögg því hún skall mjög harkalega til jarðar.“
„Þetta sem Ísak gerir er óafsakanlegt.“
„Hann á að geta dregið þetta til baka, sagt bara þetta voru mín mistök, áfram með leikinn. Fyrir mér er þetta bara einn risa hroki.“
Umræðuna, sem og alla umræðuna um Domino's deild kvenna úr þættinum, má sjá í spilaranum hér að neðan.