Erlent

Stjörnuparið Longoria og Parker skilja

Leikkonan Eva Longoria hefur farið fram á skilnað frá eiginmanni sínum til þriggja ára, Tony Parker. Þetta kemur fram á CNN.com.

Eva Longoria sem þekktust fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Desperate Housewives er sögð hafa óskað eftir skilnað Parker og er ástæðan sögð vera óásættanlegur ágreiningur milli hjónanna. Sagt er að hún hafi lagt fram skilnaðarpappírana á miðvikudaginn síðastliðinn.

Tony Parker spilar körfubolta með NBA liðinu San Antonio Spurs í Texas en Eva Longoria dvelur mestmegnis í Los Angeles þar sem tökur á þáttunum Desperate Housewives fara fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×