Innlent

Hlauparar minntir á endurskinsmerkin

Lögreglan vill beina þeim tilmælum til þeirra sem stunda útihlaup á höfuðborgarsvæðinu að nota endurskinsmerki. Að hennar sögn hefur það verið áberandi í vetur hversu endurskinsmerki eru lítið notuð hjá mörgum hlaupurum þó á ferð séu í myrkri eða við umferðargötur. Stórhætta hefur skapast af þessum sökum.

Jafnframt segir lögregla það hafa vakið athygli hversu eðlileg aðgæsla hlaupara og virðing fyrir umferðarlögum sé á stundum lítil. „Þeir fara til að mynda óhikað yfir umferðargötur án þess að nota gangbrautir þó þær séu nærri og fara yfir á móti rauðu gangbrautarljósi," segir ennfremur.

„Lögregla beinir þeim vinsamlegu tilmælum því til hlaupara sem við þessa lýsingu kannast; foreldra, afa, ömmur, frændur og frænkur, til að sýna gott fordæmi í umferð með því að nota endurskinsmerki og virða umferðarlög og reglur. Þannig stuðla þeir að eigin umferðaröryggi og annarra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×