Innlent

Karl grunaður um kynferðislega misnotkun

JSS skrifar
Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald. Mynd/ Heiða.
Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald. Mynd/ Heiða.
Karlmaður á fimmtugsaldri var í gær úrskurðaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í gæsluvarðhald. Maðurinn er grunaður um kynferðislega misnotkun á börnum.

Maðurinn sem um ræðir er búsettur á höfuðborgarsvæðinu. Hann var handtekinn í fyrradag, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins og hefur verið úrskurðaður í gæslurvarðhald í hálfan mánuð.

Grunur leikur á að maðurinn hafi misnotað fleiri en eitt barn. Um er að ræða börn af báðum kynjum og leikur grunur á að misnotkunin hafi staðið yfir um nokkurt skeið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×