Fótbolti

Sara Björk í undanúrslit

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sara Björk mun spila í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Sara Björk mun spila í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir og liðsfélagar hennar í Wolfsburg eru komnar í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir samanlagt 6-1 sigur á Slavia Prag.

Fyrri leiknum lauk með 5-0 sigri Wolfsburg í Þýskalandi og því varð eftirleikurinn í Tékklandi nokkuð auðveldur í dag. Petra Divisova kom Slavia yfir í fyrri hálfleik en Ewa Pajor jafnaði í þeim síðari.

Sara Björk spilaði í 59 mínútur fyrir Wolfsburg en Akureyringurinn Sandra María Jessen spilaði í 88 mínútur fyrir Slavia Prag sem er úr leik.

Það gæti orðið annar Íslendingaslagur í undanúrslitunum því Wolfsburg mætir annað hvort Chelsea eða Montpellier. Með Chelsea leikur María Þórisdóttir en María og stöllur hennar unnu fyrri leikinn í Frakklandi 2-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×