Brommapojkarna og fleiri lið sýnt Emil áhuga Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. desember 2014 11:00 Emil Atlason í leik gegn FH. vísir/daníel
Sænska B-deildarliðið Brommapojkarna er meðal nokkurra atvinnumannaliða sem hafa áhuga á að fá Emil Atlason, leikmann KR, í sínar raðir. Magni Fannberg er nýr þjálfari Brommapojkarna, en hann hefur stýrt U19 ára liði félagsins undanfarin ár. „Það eru nokkur lið sem hafa sýnt Emil áhuga og Brommapojkarna er eitt af þeim,“ segir Baldur Stefánsson, varaformaður knattspyrnudeildar KR, í samtali við Vísi. KR-ingar hafa fengið tilboð í Emil en þau eru langt frá því að vera þannig að Emil nálgist brottför úr Vesturbænum. „Ef þú kallar þetta tilboð þá rignir svona tilboðum yfir okkar menn reglulega. Það er oft ansi mikið bil á milli væntinga liðanna sem hafa samband og þess sem við teljum eðlilegt,“ segir Baldur. „Það hringja oft lið eða senda skeyti með einhverju sem er óraunhæft. Það er langt á milli þess sem við viljum samþykkja og oft fer það saman að ef okkur líkar það ekki þá er það óspennandi fyrir leikmanninn.“ Baldur segir að það kæmi honum ekkert á óvart ef Emil fái tækifæri í atvinnumennsku í vetur. „Emil er frábær leikmaður sem er með eiginlega sem gera það að verkum að hann getur farið langt. Hann er fljótur, sterkur og einn besti skallamaðurinn í deildinni. Það kæmi mér ekkert stórkostlega á óvart ef Emil fengi áhugavert tilboð í vetur og ef það gerist þá munum við gera allt sem við getum til að hjálpa honum með það,“ segir Baldur Stefánsson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Fótbolti Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Handbolti Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu Enski boltinn „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Jackson komst upp fyrir Eið Smára Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City „Orð geta ekki lýst því hversu eyðilagður ég er“ Englendingar syrgja mann úr heimsmeistaraliðinu frá 1966 Rice og Calafiori klárir en Crystal Palace verður án Eze Dele Alli ekki í leikformi og farinn frá Everton Áfall bætist við ógöngur Man. City Króatíski metalhausinn á að bjarga málunum „Ekki það góður leikmaður miðað hvað við tölum mikið um hann“ „Höfum við séð tvo markverði spila jafn illa í sama leik?“ Tottenham áfram í undanúrslit eftir sjö marka leik með mörgum mistökum Loks búið að ganga frá sölu Everton Segir að það sé erfiðara að vera þjálfari en forsætisráðherra Hefði viljað að Rashford hefði talað við sig fyrir viðtalið Liverpool og Newcastle áfram í undanúrslitin Gabriel Jesus skaut Arsenal áfram í undanúrslitin Arne Slot viðurkennir að hafa reynt að hafa áhrif á dómarana Chelsea trúir á sakleysi Mudryks Sjá meira