Englandsmeistarar Manchester City eru komnir áfram í 4.umferð enska bikarsins eftir þægilegt verkefni á Etihad leikvangnum í kvöld þar sem D-deildarlið Port Vale var í heimsókn.
Úkraínumaðurinn Oleksandr Zinchenko kom Man City yfir snemma leiks en Tom Pope gerði sér lítið fyrir og jafnaði metin fyrir gestina eftir rúmlega hálftíma leik. Sergio Aguero sá hins vegar til þess að Man City færi með eins marks forystu í leikhlé.
Í síðari hálfleik reyndust Englandsmeistararnir of sterkir fyrir Port Vale en ungstirnin Taylor Harwood-Bellis og Phil Foden voru á skotskónum og innsigluðu þriggja marka sigur Man City, 4-1.
Á sama tíma vann Leicester 2-0 sigur á Wigan Athletic á heimavelli á meðan Bournemouth lék sér að Luton Town og vann 4-0. Þá vann Portsmouth 2-1 sigur á Fleetwood Town.
Man City ekki í vandræðum með D-deildarliðið

Tengdar fréttir

Wolves og Man Utd þurfa að mætast aftur
Wolverhampton Wanderers og Manchester United gerðu markalaust jafntefli í 3.umferð enska bikarsins í kvöld.

Aston Villa og Brighton úr leik og Watford kastaði frá sér þriggja marka forystu | Öll úrslit dagsins
Nóg af leikjum í enska bikarnum í dag og eins og vanalega var sitthvað um óvænt úrslit.