Innlent

Besta útihátíðin gengið vel - þrjátíu fíkniefnamál

Um níu þúsund manns voru á Bestu útihátíðinni á Gaddstaðaflötum við Hellu.
Um níu þúsund manns voru á Bestu útihátíðinni á Gaddstaðaflötum við Hellu.
Um níu þúsund manns eru nú á Bestu útihátíðinni á Gaddstaðaflötum við Hellu. Töluverður erill var hjá lögreglunni á Hvolsvelli í tengslum við skemmtanahöldin í nótt, en tuttugu til þrjátíu fíkniefnamál komu inn á borð hennar og tilkynnt var um fjölda líkamsárása. Lögregla segir hátíðarhöldin hafa þó almennt séð gengið vel fyrir sig, sérstaklega í ljósi þess hve margir voru samankomnir á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×