Fótbolti

Willum sat á bekknum í sigri BATE

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Áhorfendur hafa verið hitamældir fyrir íþróttaviðburði í Hvíta-Rússlandi að undanförnu.
Áhorfendur hafa verið hitamældir fyrir íþróttaviðburði í Hvíta-Rússlandi að undanförnu. vísir/getty

Willum Þór Willumsson sat allan tímann á bekknum þegar lið hans, BATE Borisov, vann öruggan sigur í hvít-rússnesku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

BATE heimsótti FC Minsk en tímabilið byrjaði illa hjá Willum og félögum þar sem þeir töpuðu fyrstu tveimur leikjum sínum en innbyrtu sín fyrstu stig í síðustu umferð þegar þeir unnu 1-0 sigur á Ruh Brest.

BATE tókst að fylgja á eftir þeim sigri í dag þegar liðið gerði góða ferð til Minsk. Stanislav Dragun og Anton Saroka komu gestunum í 0-2 fyrir leikhlé og Pavel Nekhajchik gerði eina mark síðari hálfleiks. Lokatölur 0-3 fyrir BATE.

Willum Þór kom ekkert við sögu sem fyrr segir en hann var í byrjunarliðinu í fyrstu þremur leikjum liðsins í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×