Spider-Man: Far From Home frumsýnd á morgun Sena kynnir 2. júlí 2019 13:45
Spider-Man þarf í myndinni Spider-Man: Far From Home, að að takast á við nýjar ógnir í heimi sem hefur breyst að eilífu eftir atburði Avengers: Endgame. Þetta þýðir að Peter Parker neyðist til að stíga út fyrir þægindarammann og reyndar líka út fyrir hið venjulega sögusvið Spider Man myndanna New York. Það sem á að vera sumarfrí og ferðalag um Evrópu reynist Parker bæði hin mesta þolraun og ólýsanlegt ævintýri. Spider-Man: Far From Home verður frumsýnd á morgun, miðvikudag.„Myndin sameinar húmor, tilfinningar og allt sem fólk elskar við Spider-Man og Marvel heiminn,“ segir leikstjóri myndarinnar, Jon Watts. Jon leikstýrði einnig Spider-Man: Homecoming og þar áður Cop Car. „Við reynum að vera trú þeim tóni sem við settum í Spider-Man: Homecoming þegar við útfærðum tilfinningarþrungin atriði Far from Home,“ segir hann einnig.„Nýja myndin smellpassar við atburði Avengers Endgame enda gerist hún strax að þeim loknum,“ útskýrir Kevin Feige, framleiðandi myndarinnar. „Peter Parker og heimurinn allur þarf að horfast í augu við að Iron Man er ekki lengur til staðar en Peter vill bara fá að vera venjulegur unglingur í smá tíma. En Spider-Man getur ekki leyft sér að vera bara „venjulegur“, hann hefur skyldum að gegna gagnvart heiminum öllum, sérstaklega nú. Þegar Nick Fury leitar hann uppi til þess að berjast við nýja ógn verður Peter að taka sig taki, en er hann reiðubúinn til þess? Tom Holland, sem fer með hlutverk Peter Parker, segir að „Far from Home“ sé enn skemmtilegri en fyrsta myndin okkar en á sama tíma er hún persónulegri og áskoranirnar meiri. Í þessari mynd er allt stærra. Myndin er einfaldlega stærri og betri á allan hátt.“ Segir Kevin Feige.Tom Holland sem fer með hlutverk Peter Parker/Spider-Man er einn af áhugaverðustu ungu leikurum í Hollywood um þessar mundir. Hann varð heimsfrægur fyrir túlkun sína á Peter Parker/Spider-Man í þremur síðustu MCU kvikmyndunum, Captain America: Civil War, Spider-Man: Homecoming og Avengers: Infinity War en sú mynd sló aðsóknarmet í apríl 2018. Fyrri myndirnar tvær höluðu inn yfir einum milljarði og áttahundruð milljónum á heimsvísu.Frábær viðbrögð gagnrýnendaFyrstu viðbrögð Spider-Man: Far from Home eru frábær. „Stórkostlega fyndin – full af óvæntu tvisti - hasarhlaðið ævintýri og einmitt það sem heimurinn þarfnast eftir Endgame,“ er meðal þess sem gagnrýnendur segja. „Myndin útvíkkar MCU heiminn svo um munar. Frammistaða Tom Holland, Jake Gyllenhaal og Zendaya er frábær.“ Rotten Tomatoes dæma Spider-Man: Far From Home, ferska! IGN segir: „Spider-Man: Far From Home er skemmtileg, ótrúlega fyndin og sniðuglega útsett ævintýramynd sem uppfyllir bæði léttleika og alvarlegan undirtón Avengers: Endgame. Hún er spennandi stökk inn í næsta fasa MCU.“ Gleiberman, VARIETY: „Tom Holland vex í hlutverki sínu sem Peter Parker í Spider-Man framhaldsmynd sem spinnur vef blekkinga og sannar að MCU heldur flugi eftir Avengers.“Myndin er bönnuð innan 12 ára. Leikstjóri: Jon Watts, handrit: Steve Ditko og Stan Lee. Aðalhlutverk: Zendaya, Anqourie Rice, Tom Holland, Jake Gyllenhal.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Senu.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Brostnar væntingar á Frostrósum Gagnrýni „Að horfa upp á ofbeldi er jafn mikið ofbeldi og að verða fyrir því“ Lífið Netverjar koma „bomsum“ Ingu á Bessastöðum til varnar Lífið Frægir fundu ástina 2024 Lífið Kolféll fyrir Amsterdam og hollenskum strák Lífið „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið „Fyrstu jólin án hans og sætið hans verður tómt“ Lífið Límdi fyrir munninn á öllum við borðið Lífið Stjörnulífið: Bikiníjól og jól í Japan Lífið Einn frægasti krókódíll í heimi allur Lífið Fleiri fréttir Hinn eini sanni konungur mættur í bíó Iceguys með opna búð og árita bókina „Lágspennubókmenntir“ List Sísíar sameinar húmor og hjartahlýju í nýju jólahefti Hátíðlegt en afslappað á tíu ára afmælinu Vinsælustu vörurnar í Signature 2024 Hundrað hugmyndir að gjöf fyrir hann á Já.is Fyrsti alvöru spænski veitingastaðurinn á Íslandi Finndu hina fullkomnu gjöf fyrir hana með vöruleit Já.is Keppnisskap kemur vinum í klandur „Það er enginn að ætlast til þess að ég mæti með lík“ Die Hard á jólamyndalista helsta skvísubókahöfundar landsins Við hagræðum speglum til að sýna það af lífi okkar sem við viljum sýna „Sigmundur Davíð er súrrealisti" Glansandi feldur merki um heilbrigði gæludýrsins - góð ráð fyrir sparibaðið Uppskrift að jólamatnum - þegar ekkert má klikka Matarboðin sem fólk man eftir Töfrandi og kynngimagnaður kvennaheimur opnast Óviðjafnanleg frásögn frá einstökum höfundi Gjafabréf sem búa til ógleymanlegar minningar í íslenskri náttúru Skáldskapur talaður lóðbeint út úr eigin hjarta „Hér hvílir sannleikurinn“ Gæsahúð þegar dansarar sviptu hulunni af goðsagnakenndum bíl Að ánetjast eldri konum Hafa stutt við bætta heilsu þjóðarinnar í aldarfjórðung Sérfræðingar Útilífs aðstoða við val á rétta búnaðinum Virka sömu orðskýringar á ömmur og unglinga? Kærleikskúla sem býr til ævintýri og góðar minningar Ein ákvörðun getur miklu breytt - ritdómur Jülevenner er jólasýning sem fer alltaf úr böndunum Sjá meira