Fótbolti

Gló­dís Perla: Allt í allt örugg­lega besti leikurinn á þessu móti

Anton Ingi Leifsson skrifar
Glódís Perla eftir sigurinn.
Glódís Perla eftir sigurinn. mynd/ksí
Íslenska kvennalandsliðið í fotbolta vann sinn síðasta leik á Pinatar þar sem liðið hefur verið við æfingar og keppni síðustu viku. Glódís Perla Viggósdóttir var ánægð með sigurinn.

Glódís Perla spilaði allan leikinn í vörn Íslands en fyrsta og eina mark leiksins skoraði Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir á 34. mínútu.





„Á köflum var þetta mjög gott en á öðrum köflum ætluðum við að klára allar sóknir í tveimur sendingum. Allt í allt þá er þetta örugglega besti leikurinn á þessu móti svo það er jákvætt,“ sagði Gunnhildur í samtali við fjölmiðladeild KSÍ.

„Það er ótrúlega gaman að klára þetta mót með sigri og halda hreinu. Það er góð tilfinning. Þetta voru þrír hörkuleikir og eins og úrslitin sýna þá fengum við að æfa okkur í mörgu sem við þurftum að bæta. Vonandi tökum við það með okkur inn í aprílverkefnið.“

Ísland vann tvo af þremur leikjum sínum á mótinu en liðið tapaði einungis fyrir Skotlandi eftir að hafa unnið Norður-Írland í 1. umferðinni.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×