Matthías skoraði af vítapunktinum og Hólmbert á skotskónum í fimm marka tapi Arnar Geir Halldórsson skrifar 21. júní 2020 18:21 Tvær stoðsendingar frá Viðari Ara í dag. vísir/getty
Sex íslenskir knattspyrnumenn voru í eldlínunni í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og áttu misjöfnu gengi að fagna. Matthías Vilhjálmsson tryggði sínu liði, Valerenga, eitt stig gegn Stabæk þegar hann jafnaði metin í 2-2 með marki úr vítaspyrnu á 73.mínútu en Valerenga lék manni færri frá því snemma í síðari hálfleik þegar Herolind Shala fékk að líta rauða spjaldið. Viðar Ari Jónsson var mikilvægur liði Sandefjord sem gerði einnig 2-2 jafntefli þegar liðið fékk Start í heimsókn. Viðar Ari lagði upp bæði mörk Sandefjord en Emil Pálsson lék allan leikinn fyrir Sandefjord. Guðmundur Andri Tryggvason var ekki í leikmannahópi Start en hann er að stíga upp úr meiðslum. Þrír Íslendingar voru í byrjunarliði Álasund sem heimsótti Kristiansund þar sem úr varð algjör markasúpa. Á 37.mínútu leiksins var Hólmbert Aron Friðjónsson á skotskónum þegar hann minnkaði muninn í 3-2. Heimamenn í Kristiansund héldu áfram að fara á kostum í síðari hálfleik og unnu að lokum fimm marka sigur, 7-2. Davíð Kristján Ólafsson og Daníel Leó Grétarsson voru í byrjunarliði Álasund ásamt Hólmberti.
Norski boltinn Fótbolti Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Dagskráin í dag: Tapar Man City sjötta leiknum í röð? Sport Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Kristinn: Við vorum geggjaðir Körfubolti Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Enski boltinn Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Fleiri fréttir „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Sjá meira