Bikarmeistararnir björguðu sér naumlega og héldu 3. sæti Sindri Sverrisson skrifar 4. mars 2020 21:43 Skallagrímskonur eru í 3. sæti en í harðri baráttu um að halda því. Vísir/Daníel
Bikarmeistarar Skallagríms unnu með minnsta mun gegn Snæfelli í Borgarnesi í kvöld, 70-69, í Dominos-deild kvenna í körfubolta. Þrír leikir voru á dagskrá í kvöld. Með sigrinum náði Skallagrímur að halda 3. sæti en liðið er jafnt Keflavík með 30 stig, eftir að Keflavík vann Breiðablik á útivelli í kvöld, 86-68. Haukar eru svo í 5. sæti með 28 stig eftir að hafa unnið botnlið Grindavíkur 77-66. Skallagrímur var sjö stigum undir gegn Snæfelli þegar sex mínútur voru eftir af leiknum í kvöld, 64-57. Heimakonur skoruðu þá tíu stig í röð og fengu ekki á sig körfu í næstum fimm mínútur. Skallagrímur komst fjórum stigum yfir þegar 16 sekúndur voru eftir og þriggja stiga karfa Bjargar Guðrúnar Einarsdóttur dugði ekki Snæfelli til að knýja fram framlengingu. Keira Robinson skoraði 32 stig fyrir Skallagrím og Emilie Hesseldal 19. Hjá Snæfelli var Emese Vida með 25 stig. Daniela Wallen var stigahæst Keflavíkur í sigrinum gegn Blikum, með 19 stig, og Katla Rún Garðarsdóttir skoraði 13. Hjá Blikum var Danni Williams langstigahæst með 33 stig. Haukar voru undir eftir fyrsta leikhluta gegn Grindavík en unnu að lokum sigur. Randi Brown skoraði 29 stig og Sigrún Björg Ólafsdóttir 20 en hjá Grindavík voru Tania Pierre-Marie og Jordan Reynolds stigahæstar með 17 stig hvor og Bríet Sif Hinriksdóttir skoraði 16.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sjá meira