Innlent

Sex ein­staklingar greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Enginn er nú á sjúkrahúsi með Covid-19.
Enginn er nú á sjúkrahúsi með Covid-19. Vísir/Vilhelm

Sex einstaklingar greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrír þeirra voru í sóttkví en þrír ekki. Þá greindust tveir á landamærunum og er í þeim tilfellum beðið eftir niðurstöðum mótefnamælingar.

Þetta kemur fram í nýjustu tölum á covid.is. Enginn er nú á sjúkrahúsi með Covid-19.

Alls eru staðfest smit frá upphafi faraldursins 2.174 og af þeim sem hafa greinst með Covid-19 á Íslandi eru tíu látin.

Í einangrun eru 62 manns, en fjöldinn var 63 í gær. 400 manns eru í sóttkví, en í gær voru þeir 373.

Alls voru tekin 479 sýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans innanlands í gær og 1.056 á landamærunum eða í seinni landamæraskimun.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur er 11,5, en var 11,2 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita 5,2, en var 5,5 í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×