„Ekki jafn glæsilegur og Messi en hvað með það?“ Anton Ingi Leifsson skrifar 1. nóvember 2020 12:00 Klopp og Nat Phillips fallast í faðma eftir leikinn í gær. Peter Powell - Pool/Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, grínaðist með frammistöðu miðvarðarins Nat Phillips í viðtali við BBC eftir 2-1 sigur Liverpool á West Ham á Anfield í gær. Nat spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið LIverpool en hann kom inn í miðja vörn liðsins í fjarvergu Virgil van Dijk, Fabinho og Joel Matip. Stóð hann sig það vel að hann var kosinn maður leiksins á Sky Sports eftir leikinn. „Hann er frábær gaur. Hann er vel gefinn, gáfaður, allt,“ sagði Klopp í samtali við BBC í leikslok. „Hann er ekki jafn glæsilegur og Messi með boltann en hvað með það? Í loftinu er hann skrímsli. Hann var magnaður.“ Jurgen Klopp makes Lionel Messi admission as he hails Nat Phillips' Liverpool debut https://t.co/yT6I4UCZAw #LFC— Mirror Football (@MirrorFootball) November 1, 2020 „Þetta var hans fyrsti leikur og ég held að allir geti ímyndað sér hversu stressaður hann var eftir langa bið. Þetta er ótrúleg saga. Fyrir þremur árum síðan var hann á leið til Bandaríkjanna í skóla.“ Það var áhugi á Phillips í sumar og einhverjar líkur voru á því að hann myndi yfirgefa Liverpool. Allt kom fyrir ekki og er hann nú bjargvætturinn í miðri vörn liðsins. „Það voru tólf lið í ensku B-deildinni sem vildu fá hann og fyrir mig var það nokkuð klárt að hann væri að fara. Ég sætti mig við það en svo gekk það ekki upp. Það er frábært! Hann var flottur í kvöld og hjálpaði liðinu mikið.“
Enski boltinn Mest lesið Hrædd vegna ástandsins og þorði ekki í landsleikina Fótbolti „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Handbolti Vilja reka liðsfélaga Rúnars Alex úr landi Fótbolti „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ Handbolti „Þeir spila mjög fast og komast upp með það“ Körfubolti Svona verður enski boltinn á Stöð 2 Sport Enski boltinn Rose með þriggja högga forystu á Mastersmótinu Golf „Hann er langbesti varnarmaðurinn í þessari deild“ Körfubolti Uppgjörið: Valur-Grindavík 75-86 | Grindvíkingar í lykilstöðu Körfubolti Markvörður Frankfurt átti stórleik á móti Tottenham Fótbolti Fleiri fréttir Svona verður enski boltinn á Stöð 2 Sport Arnar spilaði með besta „pöbbaliði“ Bretlands Salah nálgast nýjan samning Klopp mætir aftur til Liverpool í næsta mánuði England öruggt með fimm sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili Brady óskaði Willum, Alfonsi og félögum til hamingju Íslendingalið Birmingham upp í B-deild Sjáðu hitt rauða spjaldið sem Gylfi hefur fengið á ferlinum Settu met sem enginn vill eiga Of ungur til að auglýsa veðmál Newcastle heldur áfram að klífa töfluna Sóknarlína Chelsea veldur áhyggjum Van Dijk tjáir sig um samningaviðræðurnar Rekinn sem slakasti stjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Neville hélt þrumuræðu um vélmennaboltann sem er að eyðileggja leikinn Guardiola hneykslaður á söngvum um móður Fodens „Ég horfði á leikinn og sparkaði tebollanum í gólfið“ Ekkert mark í grannaslagnum Chelsea tapaði stigum í markalausum Lundúnaslag Tottenham sendi Southampton niður í b-deildina Fyrsta deildartap Liverpool síðan í september „Ég er 100% pirraður“ Mikið breytt lið Villa vann mikilvægan sigur Ekki góður dagur fyrir Meistaradeildardrauma Brighton og Bournemouth Enskir fjölmiðlar segja Chelsea hafa brotið reglur UEFA Everton gerði grönnunum greiða með því að taka stig af Arsenal Amorim: Klikkun að halda að Man United geti unnið ensku úrvalsdeildina „Sorgardagur fyrir Manchester City“ Bruno bestur í mars Fordæma morðhótanir sem Tarkowski hafa borist Sjá meira