Meistararnir rúlluðu þægilega yfir Leicester Arnar Geir Halldórsson skrifar 22. nóvember 2020 21:14 Leikmenn Leicester réðu ekkert við Diogo Jota. vísir/Getty Lemstrað lið Liverpool átti ekki í neinum vandræðum með Leicester í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar á Anfield í kvöld. Það var reyndar Jonny Evans, varnarmaður Leicester, sem kom Liverpool á bragðið þegar hann skallaði hornspyrnu Andrew Robertson í eigið net. Skelfileg mistök hjá þessum reynda varnarmanni. Hinn sjóðheiti Diogo Jota tvöfaldaði forystu Liverpool skömmu fyrir leikhlé. Liverpool hafði mikla yfirburði í leiknum en þurfti að bíða þar til á 86.mínútu eftir þriðja markinu. Það gerði Roberto Firmino þegar hann skallaði hornspyrnu James Milner í netið. Afar sannfærandi sigur meistaranna sem eru í 2.sæti deildarinnar með 20 stig, líkt og topplið deildarinnar, Tottenham. Enski boltinn