Wood tryggði Burnley fyrsta sigurinn á leiktíðinni 23. nóvember 2020 19:35 Wood fagnar marki sínu í kvöld. Jan Kruger/Getty Images Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley unnu loksins leik í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni er Crystal Palace heimsótti Turf Moor í kvöld. Aðeins eitt mark var skorað í kvöld og það gerði Chris Wood á 8. mínútu leiksins. Leikurinn var nokkuð jafn frá upphafi til enda og lítið um opin marktækifæri enda bæði lið þekkt fyrir þéttan varnarleik frekar en blússandi sóknarleik. Eina markið kom eins og áður sagði á 8. mínútu og þar við sat. Cheikhou Kouyate mistókst að eiga við háan bolta frá Ben Mee, boltinn féll fyrir fætur Jay Rodriguez sem flikkaði honum með hælnum inn fyrir vörn Palace á Wood sem kláraði færið með stakri prýði. Gestirnir voru án Wilf Zaha sem greindist með kórónuveiruna en hann er potturinn og pannan í sóknarleik Palace. 20/28 - Since the start of 2014-15 (when Wilfried Zaha re-joined Crystal Palace), the Eagles have lost 20 of their 28 Premier League games without the Ivorian (W7 D1), including each of the last seven away from home. Irreplaceable. #BURCRY pic.twitter.com/4YWFmrFJF7— OptaJoe (@OptaJoe) November 23, 2020 Burnley vann þar með sinn fyrsta sigur á leiktíðinni og komst upp úr fallsæti. Liðið er nú með fimm stig að loknum níu umferðum. Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley, var hann tekinn af velli á 67. mínútu leiksins. Enski boltinn