Fótbolti

Ronaldo tekjuhærri en Adele, Howard Stern, Kevin Hart og Dr. Phil

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Cristian Ronaldo er tekjuhæsti íþróttamaður í heimi samkvæmt nýjum lista Forbes en hann þénar 88 milljónir dala árlega eða tæpa ellefu milljarða króna. Af þessum 88 milljónum eru 56 milljónir laun og bónusar en aðrar greiðslur tengdar auglýsingatekjum.

Lionel Messi er í öðru sæti með 81,4 milljónir dala í árstekjur, þar af 53,4 í laun og bónusa. LeBron James, nýkrýndur NBA-meistari með Cleveland Cavaliers, er í þriðja sæti á lista Forbes með 77,3 milljónir dala í árstekjur. Hann fær töluvert lægri upphæðir í laun og bónusa en fótboltamennirnir eða 23,2 milljónir dala.

Það sem vekur einna mesta athygli er hversu langt niður listann Tiger Woods er fallinn en hann var um árabil sá tekjuhæsti. Þrátt fyrir að vera langt frá toppnum í sínu sporti þénaði hann samt sem áður 45,3 milljónir dala á síðasta ár en þó aðeins 274.000 dali í verðlaunafé. Hann er í tólfta sæti listans.

Formúlukappar, tennisleikarar, NFL-leikmenn og fótboltamenn eru mest áberandi á listanum yfir þá 25 efstu en þar er enga konu að finna. Tekjuhæsta íþróttakona heims er Serena Williams en hún fær 28,9 milljónir í árslaun og þar af eru 8,9 milljónir dala í verðlaunafé og bónusgreiðslur.

Tíu tekjuhæstu íþróttamenn heims 2016:

1. Cristiano Ronaldo, fótbolti - 88 milljónir dala

2. Lionel Messi, fótbolti - 81,4 milljónir

3. LeBron James, NBA - 77,3 milljónir

4. Roger Federer, tennis - 67,8 milljónir  

5. Kevin Durant, NBA - 56,2 milljónir

6. Novak Djokovic, tennis - 55,8 milljónir

7. Cam Newton, NFL - 53,1 milljón

8. Phil Mickelson, golf - 52,9 milljónir

9. Jordan Spieth, golf - 52,8 milljónir

10. Kobe Bryant, NBA - 50 milljónir

Listann yfir 100 tekjuhæstu íþróttamennina má finna hér.

Cristiano Ronaldo er orðinn svo tekjuhár að hann er kominn alla leið upp í fjórða sætið á lista Forbes yfir frægustu stjörnu heims. Hann þénar jafnmikið og sjónvarpssálfræðingurinn Dr. Phil, en eina fólkið sem fær betur borgað en Portúgalinn eru söngkonan Taylor Swift, breska strákabandið One Direction og rithöfundurinn James Patterson.

Ronaldo fær betur borgað en fólk á borð við grínistann Kevin Hart sem leikur í annarri hverri gamanmynd í dag, útvarpsmanninn Howard Stern og söngdívuna Adele.

Nýkrýndi Evrópumeistarinn er með styrktarsamninga við Nike, TAG Heuer, Sacoor Brothers og Monster.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×