Erlent

Úkraínskir þingmenn slást á göngum þinghússins

Atli Ísleifsson skrifar
Þingmennirnir Yegor Sobolev og Vadim Ivchenko.
Þingmennirnir Yegor Sobolev og Vadim Ivchenko.
Úkraínsku þingmönnunum Yegor Sobolev og Vadim Ivchenko lenti saman á göngum úkraínska þinghússins í Kíev fyrr í dag.

Þingmennirnir deildu um nýtt frumvarp sem ætlað er að draga úr spillingu í landinu.

Myndband náðist af slagsmálunum sem lauk með að annar þeirra fékk blóðnasir og báðir sprungnar varir.

Sjá má myndbandið af þessum kjörnu fulltrúum að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×