Erlent

Eiturský situr yfir bænum

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/EPA
Stór sprenging varð í efnaverksmiðju í bænum Igualada sem er í um 30 kílómetra fjarlægð frá Barcelona. Eftir sprenginguna liggur gríðarstór eiturský yfir bænum en þrír starfsmenn slösuðust í sprenginunni.

Óléttar konur, börn, aldraðir og fólk sem eiga við vandræði með öndun hafa verið beðin um að halda sig heima fyrir. Samkvæmt NBC segir að bæjaryfirvöld hafi skipað fyrir um að nemendum yrði haldið innan skólanna og foreldrar hafa verið beðnir um að sækja börnin ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×