Erlent

92 ára maður keyrði á fjölda bíla - Myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Maðurinn keyrði á fjölda bíla, en var á endanum stöðvaður af fólki sem hann hafði keyrt á.
Maðurinn keyrði á fjölda bíla, en var á endanum stöðvaður af fólki sem hann hafði keyrt á.
Aldraður maður olli usla á bílastæði í Bandaríkjunum þegar hann ók á níu kyrrstæða bíla. Par sem varð vitni að atvikinu stöðvaði manninn sem verður ekki kærður. Atvikið átti sér stað í bænum Mayville í Bandaríkjunum, en lögreglan þar í bæ hefur birt myndband af ákeyrslum mannsins.

Lögreglustjórinn sagði héraðsmiðlum að maðurinn, sem er 92 ára gamall, hafi sagt lögregluþjónum að hann hafi ruglast og lent í óðagoti. „Það er kraftaverk að enginn hafi slasast,“ segir Christopher MacNeill lögreglustjóri við TMJ4 News.

„Þetta hefði geta farið mun verr. Við vorum mjög heppin að enginn hafi verið að koma úr búðinni og á leiðinn út í bíl.“ Atvikið átti sér stað við verslunina Piggly Wiggly.

Þrátt fyrir að maðurinn verði ekki kærður verður skoðað hvort að taka eigi ökuleyfið af honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×