Innlent

Staðfesta þriggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir nauðgara

Hæstiréttur.
Hæstiréttur.

Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm yfir Tomasz Burdzan, sem var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga konu á heimili sínu í júlí 2009.

Í dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll á síðasta ári kemur fram að Tomaz hefði boðið konunni heim til sín.

Þegar hún fór inn í annað herbergi til þess að hringja hrinti Tomaz henni þannig a hún féll á skáp eða hillu. Hún vankaðist og vissi ekki af sér fyrr en hún lá í rúmi Tomazar. Því næst afklæddi hann konuna og nauðgaði henni.

Tomaz er gert að greiða konunni eina og hálfa milljón í skaðabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×