Innlent

Þarf 100 nýja bíla á næsta ári

Gert er ráð fyrir að stofnanir og fyrirtæki ríkisins þurfi að kaupa eða leigja allt að hundrað nýja bíla á næsta ári. Ríkiskaup hafa efnt til útboðs vegna þess. Verða viðskiptin gerð á rekstrarleigukjörum næsta árs.

Í auglýsingu frá Ríkiskaupum segir að um kaup eða leigu á bifreiðum af ýmsum stærðum og gerðum sé að ræða. Veigamikill þáttur í mati á tilboðum verði koltvísýringslosun.

- bþs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×